"Kreppu matur"

Mig langar að setja hér inn góðar og umfram allt ódýrar matar uppskriftir....verði ykkur að góðu :)

 

Uppskrift nr.1

400 gr. hakk (nauta eða svína)

1 bolli ósoðin hrísgrjón

brúnn sósulitur

krydd

Hakkið léttsteikt í djúpri pönnu og kryddað eftir smekk.  Vatn sett útá pönnuna og grjónunum bætt útí hakkið, soðið saman þar til grjónin eru fullelduð, í miðri eldamennsku er matarlitnum blandað við svo hakkið og grjónin og í lokin ættu þau að hafa náð svipuðum lit :)  Ekki skemmir að skreyta réttinn með harðsoðnum ekkjabátum.  Borið fram með agúrku, tómötum og brauði.

 

Uppskrift nr.2

2 pk. núðlusúpur (ódýrastar í Bónus ca.30 kr.)

2 egg

Skinka, kjúklingur eða afgangs kjöt frá kvöldinu áður.

Núðlusúpurnar settar í sjóðandi vatn og potturinn tekinn af hellunni.  Þegar núðlurnar eru orðnar linar eru þær sigtaðar og settar í skál, kryddinu sem fylgir með þeim er hrært saman við þær.  Því næst eru eggin sett á pönnu og þegar þau byrja að steikjast er hrært í þeim svo úr verði eggjahræra sem sett er saman við núðlurnar.  Næst er að bæta við t.d. skinku sem skorin hefur verið í strimla.  Borið fram með hvítlauksbrauði og einnig er mjög gott að hafa sterka chilli sósu útá.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðfinna Rósantsdóttir

Höfundur

Guðfinna Rósantsdóttir
Guðfinna Rósantsdóttir

Færsluflokkar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband